Akkur – Greining og ráðgjöf ehf., kt. 480107-0710, VSK-númer 94007, Reykjavík („AKKUR"), akkur@akkur.net. Skilmálarnir gilda um áskriftir einstaklinga sem óskað er eftir á þessum vef. Um áskriftir fyrirtækja, stofnana og fleiri lesenda er samið sérstaklega í tölvupósti.
Allar greiningar sem AKKUR gefur út á meðan áskriftin er virk, sendar í tölvupósti þegar þær koma fyrst út: frumgreiningar, uppfærð verðmöt, afkomuspár og uppgjörsgreiningar. AKKUR ákveður hvað er gefið út og hvenær og lofar ekki tilteknum fjölda greininga á neinu tímabili.
Mánaðaráskrift: 5.000 kr. á mánuði. Ársáskrift: 50.000 kr. á ári. Verð eru með virðisaukaskatti. Verðið er það sem birtist á áskriftarsíðunni þegar óskað er eftir áskrift.
Áskriftin hefst daginn sem AKKUR staðfestir hana í tölvupósti; staðfestingunni fylgir fyrsti reikningur og greiningar berast frá þeim degi. Þú getur fallið frá samningnum innan 14 daga frá staðfestingu án þess að gefa upp ástæðu, með tölvupósti á akkur@akkur.net. Þar sem þjónustan hefst strax að þinni ósk greiðir þú þá aðeins fyrir dagana fram að því, og það sem greitt hefur verið umfram er endurgreitt innan 14 daga.
Hver reikningur er sendur í tölvupósti og krafa stofnuð í netbankanum þínum; engin kortagreiðsla fer fram. Mánaðaráskrift: reikningur daginn sem áskriftin hófst og síðan sama dag í hverjum mánuði þar á eftir (áskrift sem hófst 2. október fær reikning 2. nóvember, 2. desember og svo framvegis); hafi mánuður ekki þann dag, síðasta dag mánaðarins (áskrift sem hófst 31. janúar fær reikning 28. eða 29. febrúar). Eindagi hvers mánaðarreiknings er 7 dögum eftir að hann er sendur. Ársáskrift: reikningur daginn sem áskriftin hófst og síðan á 12 mánaða fresti frá þeim degi, með eindaga 30 dögum eftir að hann er sendur.
Mánaðaráskrift endurnýjast mánaðarlega og ársáskrift árlega þar til henni er sagt upp. Endurnýjunin er næsti reikningur, sendur í tölvupósti á þeim dögum sem 4. liður tilgreinir. Segja má upp endurnýjun ársáskriftar án kostnaðar fram að eindaga reikningsins (6. liður).
Sendu tölvupóst á akkur@akkur.net hvenær sem er; AKKUR staðfestir í tölvupósti. Mánaðaráskrift: áskriftinni lýkur í lok þess mánaðar sem þegar hefur verið innheimtur og ekki er sendur nýr reikningur. Ársáskrift: áskriftinni lýkur í lok greidds árs og hún endurnýjast ekki. Segja má upp endurnýjunarreikningi hvenær sem er fyrir eindaga hans, 30 dögum eftir að hann er sendur: reikningurinn og krafan eru þá felld niður, ekkert er greitt fyrir nýja árið og áskriftinni lýkur daginn sem sagt er upp. Þegar ár hefur verið greitt og 14 dagarnir í 3. lið eru liðnir eru eftirstöðvar ársins ekki endurgreiddar. Skipta má úr mánaðaráskrift í ársáskrift hvenær sem er og úr ársáskrift í mánaðaráskrift við endurnýjun.
Sé reikningur ekki greiddur á eindaga reiknast dráttarvextir samkvæmt lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá eindaga til greiðsludags. Sé reikningur enn ógreiddur 14 dögum eftir eindaga getur AKKUR gert hlé á áskriftinni eftir áminningu í tölvupósti og opnar hana aftur þegar reikningurinn er greiddur.
AKKUR tilkynnir nýtt verð í tölvupósti minnst 30 dögum áður en það tekur gildi gagnvart þér, og það gildir frá næsta mánaðar- eða ársreikningi. Þú getur sagt upp fyrir þann tíma.
Greiningarnar eru til eigin nota. Óheimilt er að áframsenda, afrita, birta eða deila þeim, í heild eða að hluta, nema með tilvitnun og heimildar getið eins og höfundalög leyfa. Greiningum sem AKKUR birtir síðar opinberlega má deila eins og öðru opinberu efni.
Greiningarnar eru almennar fjárfestingargreiningar. Þær taka ekki mið af aðstæðum þínum og eru ekki persónuleg ráðgjöf. Upplýsingagjöfin á þessum vef (á ensku) gildir um allar greiningar.
AKKUR getur lokið áskrift með 30 daga fyrirvara í tölvupósti, eða strax ef skilmálarnir eru brotnir verulega, til dæmis með því að greiningum sé deilt. Nema um brot sé að ræða er það sem greitt hefur verið fyrir tímann eftir lokin endurgreitt.
AKKUR notar nafn, kennitölu og netfang til að halda utan um áskriftina og innheimta hana, eins og persónuverndarstefnan (á ensku) lýsir.
AKKUR tilkynnir breytingar í tölvupósti minnst 30 dögum áður en þær taka gildi. Breyting þér í óhag gildir frá næsta reikningi og þú getur sagt upp fyrir þann tíma.
Íslensk lög gilda. Hafðu fyrst samband á akkur@akkur.net. Neytandi getur einnig leitað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Önnur ágreiningsmál heyra undir Héraðsdóm Reykjavíkur.
Skilmálarnir gilda frá 23. desember 2025.
Greiningarnar sem AKKUR birtir opinberlega, í tölvupósti.
AKKUR research is first sent to paying subscribers and selected research is made public afterwards, at AKKUR's discretion. Public versions carry the date and time of the original first dissemination.
By subscribing you consent to receive research and related communications from AKKUR by email. You can unsubscribe at any time using the link in every email. See the privacy notice for how AKKUR handles your data.
AKKUR — Greining og ráðgjöf ehf. · Reg. no. 480107-0710 · Reykjavík, Iceland · akkur.net
AKKUR produces investment recommendations within the meaning of Regulation (EU) No 596/2014 (MAR), as implemented in Iceland by Act No. 60/2021, and applies the presentation and disclosure requirements of Commission Delegated Regulation (EU) 2016/958. AKKUR is not authorised by the Financial Supervisory Authority of the Central Bank of Iceland and does not provide investment advice, portfolio management or any other service requiring authorisation.
Any page showing a target price alongside a market price is an investment recommendation. Ratings and target prices reflect AKKUR's most recently published valuation for each company and change only when a new valuation or rating action is published; market prices update continuously. Prices are sourced from TradingView, are delayed by at least 15 minutes, and are not a basis for execution.
Research is for information only. It is not a personal recommendation and takes no account of the objectives, financial situation or needs of any recipient.
Disclosures · Code of conduct · Ratings and history · Privacy
© 2026 Akkur – Greining og ráðgjöf ehf. Reproduction or redistribution of AKKUR material, in whole or in substantial part, requires AKKUR's written consent. Quotation with attribution, within the limits of the Icelandic Copyright Act, does not.